Almennt um námskeið Storksins
Vegna COVID-19 verða engin námskeið á dagskrá hjá Storkinum fyrr en takmörkunum vegna sóttvarna léttir.
Okkur þykir það leitt því mjög margir hafa beðið spenntir eftir nýjum námskeiðum. En við látum vita um leið og þetta breytist. Til að fylgjast með er best að vera á póstlistanum okkar. sendið okkur póst á storkurinn (hjá) storkurinn.is til að skrá ykkur.
Um námskeið Storksins
Storkurinn býður upp á fjölbreytt námskeið í prjóni, hekli og nú einnig útsaumi. Námskeiðin eru skipulögð þannig að allir nemendur eiga að geta byggt ofan á fyrri þekkingu.
Kennarar Storksins eru með mikla reynslu og þekkingu hver á sínu sviði. Lágmarksfjöldi nemenda á námskeiðum er 6 og hámarksfjöldi er 8-10 á hverju námskeiði.
Á sumum námskeiðum er gert ráð fyrir að nemendur geri prufur til að læra ákveðna tækni. Þá eru efni í prufurnar innifalið í námskeiðsgjaldinu.
Við leggjum metnað í að vera með góð námskeiðsgögn sem nemendur geta stuðst við eftir að námskeiðinu lýkur. Öll gögn eru að sjálfsögðu innifalin í námskeiðsgjaldinu.
Það er nauðsynlegt á öllum námskeiðum að taka smá hlé, standa upp og teygja úr sér. Við bjóðum upp á kaffi og meðlæti svo allir hafi orku til að halda áfram eftir hléið.
Gert er ráð fyrir að nemendur hafi með sér þá prjóna og áhöld sem þeir eiga. Þeir sem vilja geta keypt það sem vantar í versluninni og fá allir nemendur 15% afslátt á meðan á námskeiði stendur (líka á milli tíma).
Eftirspurn eftir námskeiðum getur verið mismunandi á hverjum tíma. Við reynum að koma á móts við áhuga og þarfir nemenda okkar, en við erum alltaf til í að setja upp sérstök námskeið fyrir hópa.
Helstu námskeið hafa verið prjóntækni fyrir byrjendur og lengra komna í prjóni, sérhæfð námskeið í að prjóna sjöl, vettlinga- og sokka o.fl. Einnig námskeið þar sem nemendur læra að prjóna eftir enskum uppskriftum. Nýlega hafa farið í gang npkkur peysuhönnunarnámskeið sem Helga Thoroddsen kennir. Þau hafa mælst vel fyrir.
Skráning á námskeið er annað hvort í gegnum skráningarsíðuna eða í síma 551 8258 eða sendið nafn, síma og netfang á storkurinn@storkurinn.is. Athugið að ef mikil eftirspurn er eftir námskeiði þarf að greiða 5.000 kr. staðfestingargjald til að tryggja sér sæti. Námskeiðin þarf að greiða að fullu fyrir fyrsta tímann nema um annað sé samið.